Reginn hf.: Samrunatilkynning afturkölluð og óskað eftir samþykki FME fyrir afturköllun valfrjáls tilboðs í Eik fasteignafélag hf.


Stjórn Regins hf. („Reginn“ eða „félagið“) hefur ákveðið að afturkalla samrunatilkynningu félagsins, sem send var inn til Samkeppniseftirlitsins þann 29. september 2023, vegna fyrirhugaðs samruna félagsins og Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) og samhliða hyggst Reginn óska eftir heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („FME“) til að falla frá valfrjálsu tilboði félagsins í allt hlutafé Eikar („tilboðið“).

Í síðustu viku birti Reginn drög að útfærslu sáttar við Samkeppniseftirlitið og nánari umfjöllun um skiptihlutföll mögulegs samruna félagsins og Eikar, í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið birti tillögu Regins að sátt og óskaði eftir sjónarmiðum vegna hennar. Í sömu tilkynningu kom fram að Reginn og Kaldalón hf. hefðu hafið samningaviðræður um kaup Kaldalóns á tilteknum eignum í kjölfar þess að viðskipti samkvæmt valfrjálsa tilboðinu kæmu til framkvæmda. Á grunni þeirra birtu upplýsinga funduðu stjórnendur Regins með stærsta hluthafa Eikar í því skyni að kanna afstöðu hans til fyrirhugaðs samruna. Á grundvelli þessa er það heildstætt mat Regins að skilyrði tilboðsins um að handhafar að lágmarki 75% atkvæðaréttar Eikar samþykki tilboðið muni fyrirsjáanlega ekki nást áður en gildistími tilboðsins rennur út þann 21. maí nk.

Tilboðið var upphaflega lagt fram þann 7. júní á síðasta ári í kjölfar markaðsþreifinga við stærstu hluthafa Eikar. Efni tilboðsins var kynnt hluthöfum Eikar með ítarlegum hætti þar sem farið var yfir hvernig möguleg viðskipti gætu styrkt stöðu helstu haghafa beggja félaga. Stjórn Eikar lagði upphaflega til að tilboðinu yrði hafnað en eftir að Reginn hækkaði tilboðsverðið þann 14. september sl. lagði stjórn Eikar áherslu á að hver hluthafi tæki ákvörðun en endanleg greinargerð stjórnar Eikar liggur ekki fyrir. Gildistími tilboðsins var framlengdur alls sjö sinnum vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á mögulegum samruna, frummats þess á væntum áhrifum mögulegs samruna og vegna sáttaviðræðna Regins við Samkeppniseftirlitið.

Nú liggur fyrir að fá afturköllun tilboðsins samþykkta hjá FME í samræmi við 105. gr. laga nr. 108/2007 um yfirtökur á grundvelli þess að skilyrði tilboðsins, eins og þau eru tilgreind í tilboðsyfirliti Regins, dags. 10. júlí 2023, munu fyrirsjáanlega ekki verða uppfyllt. Tilboðið heldur gildi sínu, á meðan gildistíma þess stendur, þar til FME hefur veitt heimild til þess að það verði afturkallað. Frekari upplýsingar verða veittar þegar afstaða FME liggur fyrir. Þá eru ekki lengur forsendur til að halda áfram viðræðum vegna sölu á tilteknum eignum til Kaldalóns hf. sem vísað er í hér að ofan. Stjórn og stjórnendur félagsins mun í kjölfarið beina sjónum sínum að öðrum tækifærum.

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins:
„Frumkvæði drífur framfarir. Við munum vinna hratt úr þessari niðurstöðu og byggja á langtímastefnu Regins sem felur í sér að selja tilteknar eignir og endurfjárfesta í fasteignum innan skilgreindra kjarna, einkum í nýbyggingum. Munum við meðal annars nýta réttindi sem Reginn á tengd þróunareignum hjá Klasa.

Það verða farnar aðrar leiðir að sama marki. Þessi samruni er síður en svo eina sóknarfærið sem við höfum augastað á. Markmið okkar er að byggja upp til langs tíma og halda áfram að styrkja kjarnasvæði Regins sem eiga inni mikil vaxtatækifæri. Það er ljóst að búið er að hrista upp í markaðnum og það eru áhugaverðir tímar framundan.“

---

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson,  forstjóri Regins – hb@reginn.is - s.  821-0001